Toppur Sítrónu er nú ferskari en nokkru sinni. Útlit hans minnir okkur á endurnærandi orku sólar og sítrusávaxta með svalandi bragð í hverjum dropa.
Formúlan fyrir Topp sítrónu var hönnuð með það í huga að fjarlægja sölt (steinefnin) og lækka kolsýru. Þróunin tók 12 mánuði og var afrakstur ítarlegra markaðsrannsókna, bragðprófana og þróunarstarfs sem unnið var í samvinnu við The Coca-Cola Company.
Skv. niðurstöðum markaðsrannsókna erum við með kolsýrt vatn með sítrónubragði sem hæfir best mati Íslendinga á hvernig kolsýrt vatn á að bragðast og kom þessi drykkur afgerandi vel út í bragðprófunum.
Niðurstaða þessarar þróunar er afar bragðgóður og frískandi vatnsdrykkur.
Toppur Sítrónu er framleiddur úr kolsýrðu vatni og bragðefnum og hefur sítrónu og límónukeim.