Vífilfell hefur nú hafið sölu á Soda Fresh tækjum sem leysa af Sodastream tækin sem fyrirtækið seldi hér áður fyrr. Þessi tæki eru á allan hátt mjög svipuð og virka á sama hátt.
Það eina sem er að einhverju leiti frábrugðið við þessi nýju tæki er að skrúfgangurinn fyrir kolsýruhylkin er öðruvísi en á þeim hylkjum sem Vífilfell selur og þjónustar. Til að leysa það mál fylgir millistykki með tækinu fyrir kolsýruhylkið og passa þá kolsýruhylkin í tækið.
Þessi millistykki passa einnig í nýju gerðina af Sodastream tækjum sem og Wassermax tækin sem seld eru hér á landi. Því er einnig hægt að nota kolsýruhylkin frá Vífilfelli í þau tæki hafi menn millistykkið við höndina og þess vegna er einnig hægt að kaupa millistykkið eitt og sér.