ForsíðaVörurFréttirUm VífilfellÞjónustaHafa samband
Úrval safa við allra hæfi
Vífilfell er stærsti framleiðandi ávaxtasafa á Íslandi og framleiðum við þrjú leiðandi vörumerki í ávaxtasöfum sem ætti að vera öllum landsmönnum kunnug.

Fyrst ber að nefna Trópí, vinsælasta ávaxtasafa á Íslandi. Trópí er náttúrulega hreinn gæðasafi framleiddur úr besta fáanlega hráefni í heiminum. Viljirðu gera vel við þig og njóta þess sem best að drekka safa er Trópi örugglega safi fyrir þig.

Brazzi, fjölskyldudrykkurinn, er vörulína 100% safa sem fæst í 5 ljúffengum bragðtegundum. Allir í fjölskyldunni ættu að geta fundið Brazza við sitt hæfi.

Svali, ævintýradrykkurinn, er vinsælasti drykkur ungu kynslóðarinnar. Svali er ávaxtadrykkur unninn úr 35% hreinum safa og hafa umbúðirnar og hinir sívinsælu Svala kallar heillað yngri kynslóðina í gegnum árin með Svala ævintýra veröldinni.

Nánari upplýsingar um vörurnar er að finna á hlekkjunum hér til vinstri eða með því að smella á myndir af umbúðunum hér að ofan.