Vífilfell flytur inn Magic orkudrykk. Orkudrykkir eru drykkir sem innihalda örvandi efni eins og koffein, guarana, ginseng og amínósýrur.
Þessi efni hressa líkamann, auka snerpu og úthald. Orkudrykkir eru ekki ætlaðir börnum, né öðrum sem viðkvæmir eru fyrir örvandi efnum eins og kaffeini.
Orkudrykki er t.d. hægt að drekka í stað kaffis. Örvandi áhrif orkudrykkja eru jafnari en í kaffi og reynast þægilegri í maga fyrir þá sem ekki þola kaffið.