|
|
 |
 |
|
Soja er næringarrík og einstaklega fjölbreytileg fæða. Provamel var stofnað árið 1980 og allt frá þeim tíma hefur starfsfólk fyrirtækisins unnið hörðum höndum að miklum rannsóknum sem hafa leitt til þróunar á fjöldanum öllum af bragðgóðum fæðutegundum úr soja. Nú er Provamel leiðandi á evrópskum markaði með lífræn sojamatvæli.
Sojavörur eru unnar úr sojabaunum sem innihalda hágæða prótein, vítamín og steinefni.
Provamel sojabaunir eru framleiddar með lífrænni ræktun og vinnur fyrirtækið í nánu samstarfi við marga staðbundna ræktunaraðila sem rækta lífrænt soja. Þannig er tryggt að sojabaunirnar sem Provamel notar eru í hæsta gæðaflokki og af hámarks hreinleika.
Vífilfell býður upp á nokkrar tegundir sojamjólkur sem og gómsæta ábætisrétti.
|
|
|
 |
|
 |
|