Orange drykkurinn er með appelsínubragði eins og nafnið ber með sér. Orange drykkurinn er ekki aðeins bragðgóður heldur gríðarlega ferskur og svalandi eftir góða æfingu og hjálpar til við að viðhalda vökvajafnvægi líkamans.
Powerade er íþróttadrykkur sem gefur orku á meðan á líkamsrækt stendur og viðheldur vökvajafnvægi í líkamanum. Powerade er þróað með það í huga að endurnýja vökva, steinefni og orku sem tapast við hvers konar líkamsþjálfun. Powerade inniheldur fullkomið jafnvægi milli kolvetna, steinefna og vökva sem tryggir hraða endurnýjun vökvabirgða líkamans. Powerade er fyrir alla sem eru virkir og stunda hreyfingu og hentar vel við æfingar, líkamlega áreynslu og hvenær sem þorsta sækir að.
Sérstaklega er mælt með neyslu á sportdrykkjum við mikla áreynslu, vatnstap í veikindum, í hitum og almennt þegar fólk er að ná fyrri krafti. Í Powerade eru bæði sölt og sykrur sem flýta fyrir því að jafnvægi komist á í salt- og vatnsbúskap líkamans. Powerade er hægt að fá með eftirfarandi bragðtegundum:
Orange,
Snow Storm,
Citrus Charge og
Mountain Blast.