ForsíðaVörurFréttirUm VífilfellÞjónustaHafa samband
Um vörunaPakkningar
Carlsberg
Up
Carlsberg bjórnum er best lýst sem ferskum og svalandi bjór þar sem sætleiki maltsins og biturleiki humlana er í góðu jafnvægi. Ilmurinn á að hafa keim af nýjum humlum og eftirbragðið skilur eftir örlítið ávaxtakennt bragð í munni. Alkahólmagn er 4,5-4,6%.

J.C. Jacobsen stofnaði Carlsberg verksmiðjurnar fyrir meira en 150 árum með það að leiðarljósi að brugga bjór af sem mestum hugsanlegum gæðum. Í dag er Carlsberg einn af stærstu bjórframleiðendum í heimi og er bjór bruggaður undir Carlsberg vörumerkjum hjá yfir 70 framleiðendum í 40 löndum, þar á meðal Vífilfell hf. Carlsberg hefur ávallt verið í fararbroddi í notkun tækninýjunga og rannsókna á sviði bjórframleiðslu. Hjá þeim vinna hundruðir vísindamanna sem hafa á að skipta bestu og fullkomnustu tækjum til rannsókna og prófana. Þjónusta þessara vísindamanna stendur Vífilfelli ávallt til boða. Þetta ásamt fullkomnri rannsóknastofu hjá Vífilfelli gerir sitt til að tryggja að okkar framleiðsla sé af sem bestum gæðum.