Nú fyrr í sumar fékk Víking Ölgerð á Akureyri
fyrst íslenskra ölgerða lífræna vottun frá vottunarstöðinni Tún.
Vottunin hefur mikið gildi fyrir Víking
Ölgerð sem nú hefur framleitt fyrsta íslenska bjórinn þar sem eingöngu eru
notuð bestu fáanlegu lífrænt ræktuðu hráefni auk þess sem framleiðsluferlið
hefur verið vottað af fagaðilum.
Lífrænar aðferðir draga úr hættu á ýmiskonar mengun í matvælum enda
kornið framleitt án eiturefna og tilbúins áburðar.
Bjórinn er bruggaður eftir hefðum frá Pilsen í
Tékklandi og ber nafnið Pils Organic.
Bjórinn er ljós á litinn og í hann er notað mikið af humlum sem gefur
bæði gott bragð og lykt ásamt sérstöku eftirbragði.
Bruggmeistarinn Baldur Kárason á heiðurinn af
þessum nýja bjór sem eflaust á eftir að verða vel tekið.
Pils Organic er eingöngu seldur í glerflöskum
og er fáanlegur í Vínbúðum í Kringlunni, Skútuvogi og Heiðrúnu við Stuðlaháls,
auk þess sem hann er fáanlegur á betri veitingastöðum og börum um allt land.
Víking Ölgerð á
Akureyri fer ótroðnar slóðir þegar kemur að vörulínunni Íslenskur úrvals, en
Pils Organic er annar bjórinn undir þessari línu.
Fyrsti bjórinn var Stout sem einnig var
fyrsti Stout sem framleiddur hafði verið á Íslandi.
Nú er Stout fáanlegur í fjölmörgum Vínbúðum
og veitingastöðum bæði í glerflöskum og á krana.
Á
meðfylgjandi mynd að ofan sést Gunnar Á. Gunnarsson framkvæmdastjóri Túns afhenda
Baldri Kárasyni Bruggmeistara vottorðið frá Túni.
Stærri Svali í 1L umbúðum
18. águst 2010
Vinsælasti blandaði safinn er nú væntanlegur í 1L umbúðum.
Sykurskertur epla Svali
Jarðaberja Svali
Svali er jafnframt
vinsælasta drykkjarvörumerkið á Íslandi á meðal ungu kynslóðarinnar.
Með stærri Svala svörum við kröfum neytenda og kaupmanna um ódýrari lausnir.
Pakkning þessi hentar vel inn á heimilið á meðan minni pakkningarnar henta betur í nesti og á ferðinni.
Stærri Svali fer á markað
17. ágúst
Vatn til hjálpar neyðarviðbrögðum Rauða krossins innanlands
29. júlí 2010
Rauði kross Íslands og Vífilfell hafa undirritað samstarfssamning sem lýtur að stuðningi Vífilfells við Rauða kross Íslands tengt sölu á Pure Icelandic vatni. Samkvæmt samkomulaginu mun allur ágóði Vífilfells af sölu vatnsins renna til stuðnings neyðarviðbragða Rauða krossins á innlendum vettvangi.
Rauði krossinn gegnir mikilvægu hlutverki í viðbrögðum við hamfarir, slys eða önnur áföll sem verða í samfélaginu. Neyðarviðbúnaður félagsins er mikill og fjöldi sjálfboðaliða sem eru þjálfaðir til að veita aðstoð og sálrænan stuðning eru til taks allan ársins hring. Stuðningur Vífilfells með sölu á íslensku vatni kemur sér því ákaflega vel fyrir neyðarvarnarverkefni Rauða krossins.
Í tilefni af þessu nýja samstarfi hefur Vífilfell látið hanna nýja miða á vatnsflöskurnar með vísan í stuðninginn við Rauða krossinn og bera þær heitið „Wateraid - Vatn til hjálpar” frá Pure Icelandic, en þess má geta að lang stærsti hluti kaupenda vatns í flöskum eru erlendir ferðamenn.
„Wateraid” vatnið verður eingöngu selt á Íslandi og er nú fáanlegt í 0,5 og 1,5 lítra umbúðum í verslunum um allt land. Það er von Rauða krossins og Vífilfells að neytendur taki vel við þessari nýjung, og njóti þess að styrkja gott málefni um leið og þeir svala þorstanum með góðu íslensku vatni.
Hugmyndin að vatnssölunni kom upphaflega frá ungu fyrirtæki að nafni DD ehf., og var það kveikjan að því að Vífilfell hf. óskaði eftir samstarfi við Rauða krossinn með þessum hætti. Á myndinni eru Árni Stefánsson forstjóri Vífilfells og Kristján Sturluson framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands við undirritun samstarfssamnings.