ForsíðaVörurFréttirUm VífilfellÞjónustaHafa samband
Um Vífilfell

Vífilfell er markaðs- og þjónustufyrirtæki sem starfar fyrst og fremst á sviði drykkjarvöru. Fyrirtækið stefnir að því að auka frekar vöruval innanlands, þá einkum með áherslu á heilnæmar lausnir sem falla að óskum og þörfum neytenda hverju sinni, og færa út kvíarnar á erlendum mörkuðum eftir því sem tækifæri gefast.

Viðskiptavinir okkar sjá sér hag í samstarfi vegna þess að þeir njóta ávinnings af þeim markaðslegu verðmætum sem við höfum byggt inn í vörur okkar með þekkingu, skipulagi, reynslu og hæfni. Þá ætlar Vífilfell sér að vera leiðandi birgi hvað varðar verðmætasköpun og þjónustustig gagnvart sínum viðskiptavinum, stórum sem smáum.

Við uppfyllum þarfir neytenda með vörum sem koma til móts við óskir þeirra og lífsstíl og færum þeim eftirsóknarverða upplifun í tengslum við neyslu á vörum okkar.