ForsíðaVörurFréttirUm VífilfellÞjónustaHafa samband
Vífilfell styrkir með stolti
Með viðamiklu og áralöngu samstarfi er Vífilfell aðalstyrktaraðili Regnbogabarna og Sjónarhóls.

Regnbogabörn eru fjöldasamtök áhugafólks um eineltismál. Markmið samtakanna er meðal annars að gera börnum kleift að lifa án félagslegs áreitis og ofbeldis frá jafningjum sínum. Einnig halda samtökin uppi öflugu forvarnarstarfi í grunnskólum.

Sjónarhóll eru samtök sem láta sig hag langveikra og fatlaðra barna varða. Með stofnun Sjónarhóls rætist margra ára draumur um faglega og óháða ráðgjöf fyrir aðstandendur barna sem eiga við langvarandi veikindi og fötlun að stríða.