ForsíðaVörurFréttirUm VífilfellÞjónustaHafa samband
Saga fyrirtækisins

Upphaf Coca-Cola

Árið 1886 blandaði bandarískur lyfjafræðingur, dr. John Styth Pemberton gosdrykk, sem nefndur var Coca-Cola. Drykkur þessi varð þjóðardrykkur í Bandaríkjunum og öðlaðist fljótt einnig miklar vinsældir annars staðar og er nú seldur í flestum löndum heims.

Vörumerkið Coca-Cola er á meðal þekktustu vörumerkja í heiminum. Sama má segja um hina sérstæðu Coca-Cola flösku, sem þróuð var til að aðgreina drykkinn frá öðrum gosdrykkjum og kom á markað 1915. Fyrstu árin var Coca-Cola einungis framleitt í þessari flösku. Það var ekki fyrr en um miðja síðustu öld að Coca-Cola varð fáanlegt í stærri glerflöskum og dósum. Í dag er Coca-Cola einnig selt á plastflöskum sem hafa notið vaxandi vinsæla um allan heim.

 

Nánar um sögu Coca-Cola:

http://www.thecoca-colacompany.com/heritage/ourheritage.html

http://en.wikipedia.org/wiki/Coca-Cola

 

Saga Vífilfells

Á árum síðari heimstyrjaldarinnar gerði Björn Ólafsson, stórkaupmaður, samning við The Coca-Cola Company um stofnun verksmiðju á Íslandi, og 1.júní 1942 tók verksmiðjan Vífilfell til starfa að Haga við Hofsvallagötu í Reykjavík, sem einkaframleiðandi Coca-Cola á Íslandi. Í fyrstu voru starfsmenn 14 og framleiðslan 12.000 flöskur á dag, í einni vélasamstæðu af gerðinni DIXIE. Drykknum var strax svo vel tekið að 1949 voru keyptar nýjar vélar, sem gátu afkastað 24.000 flöskum á dag. Enn varð að auka við afkastagetuna og 1958 voru framleiddar 58.000 flöskur í dagvinnu. Þá voru starfsmenn orðnir 60, en 1967, þegar verksmiðjan var 25 ára, voru þeir orðnir 73. Árið 1972 var svo komið að unnið var allan sólarhringinn í gömlu verksmiðjunni að Haga.

Árið 1973 urðu tímamót er framleiðslan flutti í nýtt og stærra húsnæði að Stuðlahálsi 1. Skrifstofurnar voru þó ennþá að Haga allt til ársins 1992. Nýja verksmiðjan að Stuðlahálsi var búin nýtísku vélum frá Crown Baele sem gátu framleitt allt að 140.000 flöskur á dagvakt. Fram til ársins 1974 var eingöngu fyllt á 0,19 og 0,3 ltr. glerflöskur en árið 1975 kom 1 lítra glerflaskan, eða "risinn" eins og hún var oft kölluð á markað og jókst þá salan umtalsvert.

Mestu breytingar í langan tíma áttu sér stað sumarið 1985 en þá hófst áfylling á 1,5ltr. plastflöskum. Neytendur tóku þessari nýjung mjög vel og fljótlega hvarf "risinn" af sjónvarsviðinu en í staðinn bættust 0,5 og 2 ltr. plasflöskurnar í hópinn.

Í dag eru plastflöskurnar langvinsælustu umbúðirnar. Verksmiðjan framleiðir allar plastflöskur sem fyllt er á. Tvær plastflöskublástursvélar geta samtals blásið út 17 þús. 0,5 l plastflöskur á klst. sem er rúmlega afkastageta plastflöskuáfyllitækjanna. Árið 1988 komu 0,33 og 0,5 ltr. dósirnar á markað. Keypt var fullkomin vélasamstæða frá Holstein und Kappert í þýskalandi og var afkastageta þeirra 18-24 þús. dósir á tímann allt eftir stærð. Vífilfell hafði þá í nokkurn tíma framleitt Hi-C og Minute Maid ávaxtadrykki og safa í áfyllivél frá Tetra Pak sem gat fyllt á 6.000 250ml fernur á klst.

Vinsældir Coca-Cola og annarra drykkjarvara verksmiðjunnar byggjast á góðum hráefnum, hárnákvæmri blöndun, ströngu hreinlæti og sívakandi eftirliti, og síðast en ekki síst, góðu starfsfólki. Áhersla hefur ætíð verið lögð á góða dreifingu en upphaflega voru notaðir svonefndir hillubílar. Fyrsta bifreið verksmiðjunnar var af Ford-gerð og var þá stærsta vörubifreið landsins og voru settar um hana sérstakar reglur, t.d. varðandi þyngd. Síðan hefur bílaflotinn jafnt og þétt verið aukinn og fullkomnaður eftir þörfum.

Árið 1974 lést Björn Ólafsson og tók þá sonur hans Pétur Björnsson við starfseminni.

Árið 1982 var vinnupláss verksmiðjunnar tvöfaldað og í loka níunda áratugarins hafði flatarmál verksmiðjunnar fimmfaldast frá því sem það var upphaflega ári 1973.

Árið 1992 var nýrri skrifstofubyggingu bætt við verksmiðjueininguna. Byggingin var vígð 11. september á fimmtugsafmæli fyrirtækisins.

 

Saga smjörlíkis / Sólar hf.

Árið 1939 hófst formlegt samstarf fjögurra smörlíkisgerða í Reykjavík sem síðar var sameinað í fyrirtækið Smjörlíki hf. Árið 1972 hófst svo framleiðsla á drykkjarvörum. Stofnað var sérstakt félag um drykkjarvöruframleiðsluna sem nefnt var Sól hf. og varð drykkjarvöruhlutinn fljótt umfangsmesti þáttur rekstrarins. Sól hf. var brautryðjandi hér á landi í framleiðslu og markaðssetningu á hreinum og blönduðum ávaxtasöfum í einnota pappaumbúðum.

 

Saga Efnagerðar / Víkings hf.

1939 var Hf. Efnagerð Siglufjarðar stofnuð en um mitt ár 1945 var starfsemin flutt til Akureyrar og nafninu breytt í Efnagerð Akureyrar hf. 1962 var ný verksmiðja reist að Furuvöllum 18 og nafninu breytt í Sana hf. 1966 voru ný tæki til ölgerðar tekin í notkun en Sana hf. og Sanitas hf. voru svo sameinuð árið 1978. Árið 1988 var ölgerðin öll stækkuð og endurbyggð, ári áður en bjór var leyfður á Íslandi. Nafninu var svo breytt í Víking hf árið 1994.

1997 eru Sól hf. og Víking hf sameinuð undir nafninu Sól-Víking.

 

Sameining Vífilfells og Sólar-Víkings

Snemma árs 2001 samþykktu samkeppnisyfirvöld samruna Sólar-Víkings og Vífilfells án skilyrða og voru fyrirtækin þá sameinuð undir nafni Vífilfells.

Nýjir eigendur að Vífilfelli voru þá Þorsteinn M. Jónsson, Sigfús R. Sigfússon og Kaupþing. Við sameininguna varð Vífilfell stærsta fyrirtæki landsins í drykkjarvörum.

Áfyllingu í margnota glerflöskur var hætt að Stuðlahálsi 4.janúar 2002. Þess í stað hófst áfylling í einnota 250 ml glerflöskur á Akureyri þann 23. janúar. Þar með lauk framleiðslu á hinni þekktu 190 ml Coke glerflösku sem varðað hafði samfleytt í tæplega 60 ár.

Vífilfell hefur frá upphafi haft einkaleyfi á framleiðslu og innflutningi á vörum The Coca-Cola Company á Íslandi. Vöruflóran hefur verið mjög fjölbreytt í gegnum tíðina, en henni eru gerð betri skil neðar á síðunni.

Útflutningur hefur síðustu ár skipað smáan, en vaxandi sess í starfsemi fyrirtækisins. Svali hefur frá níunda áratugnum verið fluttur út til Færeyja og Bretlands. Á síðastu árum hefur lítilsháttar útflutningur á bjór bæst við. Víking bjórinn fæst nú á nokkrum stöðum í og við höfuðborg Bandaríkjanna, Washington, DC, og Víking og Thule má einnig finna í áfengiseinkasölu frænda okkar Færeyinga, Rúsdrekkasøla Landsins, og hafa notið þar talsverðra vinsælda.

Árið 2007 hóf Vífilfell innreið sína á mjólkurmarkað með framleiðslu á kakómjólk í 250 ml. umbúðum undir Kappa vörumerkinu.

 


Nokkrar staðreyndir um fyrirtækið
 
Vífilfell er til húsa að Stuðlahálsi 1, Reykjavík og á Furuvöllum, Akureyri.
 
Fjöldi starfsmanna u.þ.b. 230
 
Veltan eru rúmir 7 milljarðar króna.
 
Vörum fyrirtækisins er dreift til a.m.k. 2.500 útsölustaða
 
Fyrirtækið er stærsti gosdrykkjaframleiðandi landsins og í 2. sæti yfir matvælafyrirtæki.
 
Vífilfell er í dag í eigu gosdrykkjaframleiðandans Cobega á Spáni.  Cobega er fjölskyldufyrirtæki sem stofnað var árið 1951 um framleiðslu á vörum frá Coca-Cola fyrirtækinu.  


 


Röð helstu vörumerkja Vífilfells á íslenskan markað
 
Coca-Cola 1942
 
Fresca 1967
 
Tropicana 1972 (breytt í Trópí snemma á níunda áratug síðustu aldar)
 
Fanta appelsín 1976
 
Svali 1982
 
Tab 1982 (sölu hætt 2007)
 
Sprite 1983
 
Diet Coke 1985
 
Hi-C 1985 (sölu hætt 2007)
 
Diet Sprite 1986 (heitir nú Sprite Zero)
 
Víking Gylltur (núverandi styrkleiki) 1989
 
Víking Jólabjór 1990
 
Thorspring 1990 (sölu hætt 2000)
 
Fruitopia um 1990 (sölu hætt ári síðar)
 
Tab Xtra 1993 (sölu hætt 2001)
 
Aquarius 1993
 
Fanta Lemon 1993 (sölu hætt 2004)
 
Blátoppur 1993 (Toppur, sódavatn)
 
Thule 1993
 
Brazzi 1993
 
Límónutoppur 1996 (Toppur, sítrónu síðan 2007)
 
Víking Lager 1997 (hét þá Víking Rauður)
 
Víking Sterkur 1997
 
Carlsberg 1998
 
Schweppes Indian Tonic 2001
 
Schweppes Ginger Ale 2001
 
Nestea (peach & lemon) 2001 (sölu hætt 2004)
 
Víking Lite 2001
 
Diet Coke Lemon 2002 (sölu hætt 2003)
 
Vanilla Coke 2002 (sölu hætt 2003)
 
Hreinn Toppur 2002 (Toppur, kolsýrt vatn)
 
Fanta Wildberry 2002 (sölu hætt 2005)
 
Nestea Black Currant 2002 (sölu hætt 2004)
 
Powerade (Mountain Blast, Citrus Charge & Orange Burst) 2002
 
Fanta Free Orange 2002
 
Pure Icelandic 2002
 
Fanta Free Pinapple Grapefruit 2003 (sölu hætt 2006)
 
Coca-Cola light 2005
 
Burn 2006
 
Toppur lime með vítamínum (2006)
 
Toppur T2, sítrónu og peru (2006) (heitir núna Ávaxta Toppur)
 
Coca-Cola Zero 2007
 
Berg Toppur, sítrónu og skógarberja 2007
 
Ávaxta Toppur með appelsínubragði 2007