|
Hlutverk
Vífilfell er markaðs- og þjónustufyrirtæki, sem sér hlutverk sitt að bjóða ávallt fjölbreytt og spennandi vöruval, fyrst og fremst á sviði drykkjarvöru, fyrir íslenskan markað jafnframt þvi að færa út kvíarnar á erlendum mörkuðum.
Viðskiptavinir Vífilfells sjá sér hag í samstarfi vegna þess að þeir njóta ávinnings af þeim markaðslegu verðmætum sem byggð hafa verið inn í vörur félagsins með þekkingu, skipulagi, vel skilgreindu þjónustustigi, reynslu og hæfni.
Þarfir neytenda eru uppfylltar með vöru sem fellur að jákvæðum og heilbrigðum lífsstíl og þeim er færð eftirsóknarverð upplifun í tengslum við neyslu hennar.
Gæðastefna
Leiðarljós
Starfsmenn Vífilfells skulu ávallt hafa það að leiðarljósi, að uppfylla væntingar viðskiptavina og neytenda um vörugæði og þjónustu
Gæðakerfi
Vífilfell viðheldur vottuðu gæðakerfi samkvæmt kröfum The Coca-Cola Company, sem settar eru fram í staðlinum The Coca-Cola Management System, og kröfum alþjóðastaðalsins ISO-9001. Einnig skal starfsemin uppfylla þær kröfur, sem Carlsberg gerir til framleiðslu, markaðssetningar, sölu og dreifingar á vörum undir vörumerkjum þess jafnframt því að standast viðeigandi kröfur í lögum og reglugerðum.
Öryggi
Öryggi neytenda er ávallt haft í fyrirrúmi. Jafnframt skal öryggi starfsfólks og eigna tryggt í samræmi við öryggisstefnu fyrirtækisins.
Framkvæmd
Gæðakerfið skal vera eðlilegur og órjúfanlegur hluti af vinnuumhverfinu og veita stuðning við dagleg störf. Allir starfsmenn hljóti þá þjálfun sem nauðsynleg er til að tryggja gæði vöru, markaðsstarfs og þjónustu. Stöðugt skal unnið að umbótum á verklagi og verkferlum.
Umhverfisstefna
1. Almennt
Vífilfell hefur sett fram umhverfisstefnu og vill með henni lýsa yfir ábyrgri afstöðu til þeirra umhverfisáhrifa, sem starfsemi þess hefur í för með sér og einnig vilja til þess að vinna að endurbótum á starfsháttum sínum, þannig að til jákvæðrar þróunar leiði. Umhverfisstefnan verður, fyrst um sinn, endurskoðuð einu sinni ári og árangur af umhverfisstarfi metinn.
2. Umhverfisstefnan
Vífilfell mun leitast við að vernda og bæta umhverfið með því að:
-
Þekkja, skrá og meta þau umhverfisáhrif sem af starfsemi félagsins leiðir.
-
Uppfylla viðeigandi kröfur stjórnvalda og samstarfsaðila í umhverfismálum.
-
Vinna að stöðugum umbótum í umhverfismálum í samvinnu við almenning, viðskiptavini, og stjórnvöld.
-
Lágmarka áhrif starfseminnar á umhverfið með aðgerðum sem
-
draga úr mengun og losun úrgangs;
-
stuðla að aukinni endurvinnslu;
-
auka vægi endurnýjanlegra orkugjafa í starfseminni.
Vífilfell telur, að virðing starfsfólks fyrir náttúru og umhverfi sé lykill að árangursríku umhverfisstarfi og mun því hvetja, beint og óbeint til hollrar útivistar og ábyrgrar hegðunar gagnvart umhverfinu.
Öryggisstefna
Við hjá Vífilfelli setjum heilbrigðis- og öryggismál starfsmanna í öndvegi. Við teljum mikilvægt að allir starfsmenn starfi í starfsumhverfi þar sem heilsa og öryggi þeirra eru tryggð. Lögð er áhersla á að byggja upp sterka öryggisvitund meðal allra starfsmanna til að fyrirtækið geti boðið upp á slysalaust umhverfi. Öllum kröfum í lögum og reglugerðum skal fylgt og stöðugt skal unnið að umbótum til að stuðla að auknu öryggi allrar sem að starfseminni koma.
Stjórnendur og starfsmenn skulu vinna sameiginlega að þessum markmiðum með því að:
-
vera stöðugt vakandi fyrir öryggismálum og þeim fyrirbyggjandi aðgerðum sem þörf er á í hvert skipti;
-
allir innan fyrirtækisins vinni með samstilltu átaki að öryggismálum;
-
öryggismál verði órjúfanlegur hluti af öllum daglegum störfum með því að byggja upp jákvæð viðhorf með fræðslu og hópastarfi;
-
áhættugreiningar og mælingar á árangursvísum verði stöðugt í endurskoðun;
-
sækjast eftir nánu samstarfi við fyrirtæki Coca-Cola til að styðja við öryggisstarf fyrirtækisins.
|