ForsíðaVörurFréttirUm VífilfellÞjónustaHafa samband
Carlsberg kallar á Peter Schmeichel í sitt lið
26. janúar 2012

Carlsberg kallar á Peter Schmeichel til að vera þeirra alþjóðlegi talsmaður fyrir UEFA EURO 2012™

Carlsberg, sem opinber styrktaraðili UEFA EURO 2012™, er að setja saman sitt eigið draumalið til að kynna fyrirtækið og stuðning þess við keppnina.

Sem hluta af þessu ferli tilkynnir Carlsberg í dag að það hafi ráðið Peter Schmeichel, fyrrum landsliðsmarkvörð Danmerkur og Manchester United, sem alþjóðlegan talsmann Carlsberg fram yfir UEFA EURO 2012™ keppnina.


Að þessu tilefni sagði Jørgen Buhl Rasmussen, Forstjóri Carlsberg samsteypunnar:
“Þetta er frábært tækifæri fyrir okkur og við erum í skýjunum yfir því að fá Peter Schmeichel í okkar lið.  Hann er ekki bara þekktur sem leikmaður á okkar stærstu markaðssvæðum – Danmörku og Bretlandi – heldur er hann þekktur á öllum helstu markaðssvæðum Carlsberg í bæði Evrópu og Asíu.  Við erum þess fullviss að Peter Schmeichel hjálpar okkur að ná góðum árangri með UEFA EURO™ keppnina.

“Peter Schmeichel í þekktur í fótboltaheiminum og hann mun hjálpa okkur að koma nýrri staðfærslu “Þetta kallar á Carlsberg” til skila.  Hann er einnig fyrirmynd og kemur okkar skilaboðum um að UEFA EURO 2012™ eigi að vera notið í hófi.”

Sem talsmaður Carlsberg samsteypunnar mun Peter Schmeichel koma að mörgum hliðum kynningarstarfssins, þar með talið að eiga samskipti við fótboltaáhugafólk gegnum Facebook síðu Carlsberg og leikinn “the Fan Challenge” þar sem fólk getur unnið miða á UEFA EURO 2012™ og hugsanlega fengið að afhenda verðlaun fyrir mann leiksins á úrslitaleiknum.
Schmeichel mun einnig vera þátttakandi á blaðamannafundum og uppákomum á vegum Carlsberg fyrir og á meðan keppninni stendur.


Peter Schmeichel sagði:
“Ég er mjög ánægður með að vera talsmaður Carlsberg sem hefur mikla og sterka tengingu við fótboltann í Evrópu.  Ég held að ein ástæðan fyrir því að ég fékk tækifæri til að spila fótbolta er útaf stuðningi Carlsberg við iþróttina.  Þegar ég var að alast upp var það draumur minn að spila fyrir landsliðið og Manchester United.  Á þessum tíma kringum 1970 voru Carlsberg byrjaðir að styðja við íþróttina í Danmörku og skapaði tækifæri fyrir aðila eins og mig að verða meiri þátttakandi í þessum frábæra leik.
“Carlsberg hefur verið stuðningsaðili Evrópukeppninnar í meira en 20 ár samfleytt og þannig sýnt hollustu við áhangendur og fótboltaunnendur og núna hlakka ég til að spila mitt hlutverk með þeim.”

Þátttaka áhangenda
Núna er Carlsberg að gefa áhangendum tækifæri á að upplifa stemninguna í úrslitum UEFA EURO 2012™ af eigin raun.  Það eina sem fólk þarf að gera er að heimsækja www.facebook.com/Carlsberg velja “Like” á síðunni og taka þátt í skemmtilegum leikjum til að sýna áhuga sinn á keppninni.
Þegar verkefni á síðunni er lokið fá þátttakendur sýndarbikar frá Carlsberg Fan Challenge™.  Eftir því sem áhangendur safna fleiri bikurum því meiri möguleika eiga þeir á því að vinna miða í hverjum mánuði.  Þeir aðilar sem náð hafa mestum árangri keppa svo sín á milli um stærstu verðlaunin sem verða hluti af sögunni þegar einn aðili fær að afhenda verðlaun fyrir Carlsberg Mann leiksins á úrslitaleik UEFA EURO 2012™.
Verkefnin krefast samblands af fótboltaþekkingu og áhuga á UEFA EURO™.  Árangurinn mun einnig styðja við Carlsberg í baráttu sinn við ábyrga hegðun.
Allar frekari upplýsingar um Carlsberg Fan Challenge og fótboltaarfleifð má finna á www.facebook.com/Carlsberg eða www.carlsberg.com

Víking Þorrabjórinn er kominn
20. janúar 2012

Víking Þorrabjórinn kom aftur á markað 2011 eftir nokkurra ára hlé og fékk góðar viðtökur.  Núna bætum við bjórinn enn meira og kynnum millidökkan þorrabjór með góðum karakter.

Þorrabjórinn er rauðbrúnn að lit með mikla fyllingu og góða froðu.  Í bragði má finna vott af karamellu enda töluvert karamellumalt notað í bjórinn, gott malt og ristaðan keim.  Göfugt humlabragðið gefur honum góðan karakter.  Kjörhitastig fyrir neyslu er um 8° en eftir því sem hitastigið er hærra verður bjórinn bragðmeiri.  Víking Þorrabjórinn hentar vel með þorramatnum auk þess að vera góður einn og sér. Bruggmeistari þorrabjórsins er sem fyrr Baldur Kárason.

Bjórinn kemur í 33cl flöskum og kútum fyrir veitingastaði.

Trópí Tríó - nú einnig í plastflöskum
12. janúar 2012

Vífilfell kynnir nú á markað Trópí Tríó með aldinkjöti í plastflöskum.

Trópí Tríó 1L

Trópí Tríó er vara sem flestir Íslendingar ættu að þekkja þar sem varan hefur verið á markaðnum í meira en áratug. Stöðug sala í gegnum árin sannar að Íslendingar kunna að meta vöruna.


Trópí Tríó með aldinkjöti inniheldur 100% hreinan safa úr appelsínum, vínberjum, guava o g ástaraldinum.


Fáanlegur með aldinkjöti í 0,33L og 1L plastflöskum. Trópí Tríó mun áfram fást í 0.25L fernum.


Trópí Tríó er frábær viðbót við Trópí vörulínuna sem hefur vaxið vel síðasta árið.


Unnið er að sölu og dreifingu vörunnar þessa daganna.